Hlaup 3 - Upprisa?
Þá er þriðja hlaupið búið. Ég hef verið mjög ragur að undanförnu vegna hnjáverkja. Í þetta skiptið voru hlaupnir rúmir 7 km á léttu tempo-i (vegalengdin var í raun aðeins lengri en mælingin gaf til kynna vegna háhýsa, trjáa og skýjafars). Þetta hlaup gekk bara vel, hnjálega séð og 7, 9, 13, vonandi er það merki um það sem koma skal. Annars var hlaupið þannig að við hlupum af stað í þokkalegasta veðri en eftir um 2 km byrjaði þessi ausandi úrhellisdemba. Við hörkuðum auðvitað af okkur og hlupum þessa rúmu 5 í rigningunni en það var ekki þurran bletta að finna eftir þetta. Dry-fittið náði ekki einu sinni að haldast þurrt. Vonandi er þetta upphaf nýrrar gullaldar.
Hlaupið:
Vegalengd: 7,09 km
Tími: 47:26
Meðalhraði: 9,0 km/klst (6,7 mín/km)
Meðalpúls: 144 slög/mín
Brennsla: 348 kaloríur (1,24 Snickers)
Aðstæður:
Hiti: 20°C
Raki: 96%
UV(sólarljós): 0 (sama og ekkert, enda úrhellisrigning)
Skyggni: 0,8 km
Úrkoma: Massíf
Hlaupið:
Vegalengd: 7,09 km
Tími: 47:26
Meðalhraði: 9,0 km/klst (6,7 mín/km)
Meðalpúls: 144 slög/mín
Brennsla: 348 kaloríur (1,24 Snickers)
Aðstæður:
Hiti: 20°C
Raki: 96%
UV(sólarljós): 0 (sama og ekkert, enda úrhellisrigning)
Skyggni: 0,8 km
Úrkoma: Massíf

